Bloggsvæði Roonie

15.07.2008 22:31:54 / roonie

Björn Atli Rúnarsson

Komiði sæl. Það er í fréttum að ég og lilla mín erum búin að skíra litla drenginn okkar, og valið var Björn Atli. Athöfnin var haldin í heima hjá okkur og gekk allt vel fyrir sig.. Smá stress hjá okkur og þegar hann byrjaði að gráta og engin heyrði í prestinum leit þetta ekki vel út hehe. En þetta slapp allt saman fyrir horn;). Annars er ég bara búinn að vera að vinna og vinna og vinna og haft litinn tima í annað. Nú nálgast í landsmót í golfi svo maður verður að fara æfa sig svo maður verði ekki í tómu basli í því.....8|. Síðan eru komnar fullt af nýjum myndum á síðuna okkar lillu, svo endilega tékkiði á þeim;). En þanga til næst over and out. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.06.2008 10:50:54 / roonie

Barcelona

Komiði sæl, já þetta er nú búinn að vera erfið vika hjá okkur bræðrum. Loka próf á þriðjudaginn og það tókst allt vel. Held að allir íslendingar í horsens séu mér sammála þegar ég segi (loksins er þetta búið). Lilla mín og lilli komu auðvitað með mér út og var það góður tími hjá okkur að fá loksins að vera bara við með strákinn okkar:d. En þau fóru heim eftir viku, og ég get ekki beðið eftir að koma heim til þeirra. En það verður ekki alveg á næstunni því við eigum eftir valfag, og í því valfagi förum við til barcelona í 6 daga, að skoða byggingar og fl skemmtilegt;). En núna erum við bara Í rólegheitunum, spila golf, og chilla í góða veðrinu8)

Þanga til næst veriði hress.

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 15:35:00 / roonie

Strákurinn

Komiði sæl. komið langt síðan ég bloggaði, hef bara ekki nennt því:d. En já litli drengurinn okkar er orðin meira en mánaða gamall og stækkar og stækkar. Hann var auðvitað hvorki stór né þungur þegar hann fæddist;). Allt gengur mjög vel annars, rólegur drengur;), er sammt meira vakandi núna sem er ekkert nema gott mál:d. Ég er annars ekki mikið búinn að gera nema að læra og hugsa um snáðan8|.

Þanga til næst veriði hress;).

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 10:06:54 / roonie

Miðannapróf

Já það er búið að vera mikið að gera í þessari viku sem er að líða. Ég byrjaði á því að fara til Horsens á þriðjudaginn, þá var næst að gera allt klárt fyrir próf. Við vorum smá stressaðir fyrir þetta próf en sá hrekkur fór mjög snemma þegar prófið byrjaði. Þetta gekk vel hjá okkur, kennarinn sáttur og það er fyrir öllu. Við fórum svo heim og chilluðum aðeins. Síðan var ferðinni heitið á skólabarinn og fagnað þessu auðvitað með stæl;). Gott kvöld. Síðan flaug ég heim á föstudags morgun, Það var yndislegt að sjá lillu mína og þann stutta, búinn að sakna þeirra, þó ekki sé langur tima liðinn:d. Nú er bara að hugsa um lilla og hafa það gott.

Þanga til næst veriði hress.8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2008 21:57:27 / roonie

Good times

já nú eru liðnir 5 dagar síðan sá stutti kom í heimin:d. Og 4 síðan við komum heim úr hreiðrinu;). Á þessum dögum eru nánast allir búnir að koma að kikja á snáðan, Ég og lilla mín erum nánast ekkert búin að fara út úr húsi hehe, því það verður að vakta þann stutta svo hann fari sér ekki að voða;). Ég er búin að vera duglegur í bleyju skiptingum(turning pro);). Hann gerir allavega alveg nóg í buxurnar. Hélt að svona lítið kríli gæti þetta ekki hehe. Síðan er alltaf jafn gaman að dressa hann upp, endalaust að fötum sem við erum búin að fá og kaupa(aðalega fá;)). held að honum líði bara best á skiptiborðinu:d. Annars sefur hann nú bara og drekkur til skiptis hann lilli minn. Næturnar hafa verið framar vonum, snáðin rólegur en við vöknum sammt alltaf einu sinni á nóttu til að gefa. (lilla gefur ég horfi á hehe). Við erum annars í skýjunum og erum enþá að velta honum fyrir okkur;)

Litla fjölskyldan biður að heilsa:d.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 09:46:36 / roonie

Drengur!!!!!

Já loksins hefur maður smá tima til að blogga;). Ég og lilla mín áttum Dreng þann 1 april (ekki plat) hann var 12,5 merkur og 50 cm. Hann er með mikið dökkt hár eins og pabbi sinn að sjálfsögðu:d. Ég er ekkert smá stoltur af lillu minni, hún fór í gegnum þetta með glæsibrag og auðvitað að deyja úr stolti af litla peyjanum okkar lika:lol:. Fyrsta nóttin gekk vel fyrir sig, sá stutti svaf bara til morguns eftir að mamma var búinn að gefa honum að drekka, algjör snilli og ekkert smá rólegur:d. Við feðgar liggjum í þessu uppi í rúmi og erum að kúra okkur saman hehe. Get ekki líst hvað þetta er geggjað. En svo koma myndir inn á imageevent.com/runaroglilla í dag eða á morgun. Og ef þið viljið passwordið þá talið þið bara við mig eða lillu.

Takk fyrir allar kveðjurnar vinir og vandamenn:d.

En þanga til næst hafiði það gott.

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 09:18:39 / roonie

Mættur á klakann

Komiði sæl og blessuð, já strákurinn er mættur og ekkert smá sáttur með að vera komin heim;). Helgin var frekar róleg hjá mér og lillu, við vorum bara heima í rólegheitunum á föstudaginn, smá búðarölt og skoða barnadót:d. á laugardaginn fórum við í bió, það var bara ágætis ræma. á sunnudaginn var spilaður smá póker um kvöldið annars bara chill um daginn.  Það er búið að vera svo geggjað veður síðan ég kom heim, svo við höfum tekið nokkra göngutúra, sem er bara hressandi8). En annars gengur allt vel hjá okkur lillu og við getum ekki beðið eftir að babyið komi í heiminn;).

En þanga til næst veriði hress.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 10:36:51 / roonie

Síðasta helgin í horsens

Já liðin helgi er sú seinasta í bili því ég er að koma heim á fimmtudaginn. Já ég er að fara heim til lillu minnar, því það líður nú að litla krílinu okkar;). Já við strákarnir fórum á skólabarinn á fimmtudaginn og fengum okkur nokkra:d. Á föstudaginn var svo skilað verkefni sem við höfum verið að vinna að seinustu 2 vikur. Og svo um kvöldið grillað hammara hjá jóa;). þegar leið á kvöldið koma strákarnir allir og myndaðist góð stemmning, og við enduðum allir niðri í bæ. Mjög skemmtilegt kvöld:haha:. Laugardagurinn var í rolegri kantinum, við spiluðum póker um kvöldið og vorum við allir nokkuð þunnir lika svo gott að taka því rólega hehe. Sunnudagurinn í leti alltaf hehe. Eins og ég sagði áðan er ég að koma heim, og hlakkar í stráknum. Enda heima best.

Þanga til næst veriði hress.8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 07:56:47 / roonie

Skólabarinn og golf

Já nú er helgin afstaðin og nokkuð góð bara hehe. Á föstudaginn fórum ég og jói á skólabarinn, hann var pakkaður að fólki;). Það var margt um íslendinginn að vanda og var þetta bara gott kvöld:d. Svo var laugardagurinn bara rólegur, ekkert gert nema að liggja í leti og horfa á tv. Jú og auðvitað var eurovision á laugardagin, mitt lag hey hey ho ho náði ekki í topp sætið:(. Þetta er eithvað svo mikil snilld þetta lag, allavega finnst mér þetta alltaf jafn fyndið;). Á sunnudagin var svo farið í golf, ég Árni og Ármann fórum 18 holur og gekk mér bara framar vonum meðan við allt:d. Við þurftum að keyra í svona 45 min á þennan völl, held að þetta sé eini völlurinn sem er opin í dk.

En ég ætla að fara læra eithvað svo veriði hress8).

» 7 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 06:26:31 / roonie

Einn aftur

Já hún lilla mín var að fara, rétt í þessum töluðu orðum. Það er búið að vera svo gott að hafa þessa elsku hjá mér. Við Fórum auðvitað í nokkra veslunar ferðir, ekki mín sterkasta hlið;). Síðan var smá matarboð hjá jóa á laugardags kvöldið sem var mjög gaman:lol:. En annars eru við bara búin að lyggja í leti og láta fara vel um okkur;). En í dag byrjar skólinn fyrir alvöru, Svo núna verður tekið á því næstu þrjár vikur, því ég er að koma heim 13 mars. Og fer ekkert aftur til horsens nema bara til að fara í prófin. Já og svo var ég að setja inn myndir, og heitir linkurinn myndir 2007 hehe.

En annars er ég bara að fara taka mig til í skólan. Svo verið hress:lol:.

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 21:12:44 / roonie

Tenerife

Já þetta óvænta var það að við strákarnir skelltum okkur til tenerife í sólina. Mamma og pabbi voru lika þarna úti, svo þetta var bara eins og í the good old times;). Það var legið í sólbaði, labbað út um allt, drukkið bjór, og legið aðeins meira í leti:). Þetta var snilldar ferð. Ætla svo að fá myndir hjá jóa og setja inn, gunni bróðir er aðeins duglegri að setja inn myndir, svo það er hægt að tékka hjá honum;). En svo þegar ég kom heim til horsens beið hún lilla mín í íbúðinni minni. Ekkert smá gott að koma heim til þessarar elsku:lol:. Eins og flestir vita er hún lilla mín sett 5 april svo það stittist í þetta hjá okkur:lol:. Við getum ekki beðið. Já hún lilla verður hérna hjá mér 10 daga, og æltum við að hafa það gott;). Við skilum kveðju á klakan í veður blíðuna8).

Þanga til næst veriði hress.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 19:16:43 / roonie

List hehe

Komiði sæl. Já það er búið að vera mikið að gera í skólanum. Við erum að klára valfagið okkar núna í þessari viku. Og í tilefni þess(eða þannig;)) var fengin stelpa eða kona aftur á móti, til þess að sitja fyrir. Já þetta var, héldum við vandræðalegt fyrir hana að standa þarna út á miðju golfi nakin og allir að horfa á hana. En allt kom fyrir ekki, það var eins og hún hafði ekki gert neitt annað. Þetta er auðvitað fyrsta skipti hjá okkur teikni snillingunum að teikna svona live, en ég held bara að þetta hafi gengið ágætlega hjá okkur hehe.;). En það er nú búið að vera heldur rólegt annars hérna hjá okkur í horsens. Mest litið að gera, En við strákarnir erum með svolitið í pokahorninu, en ég ætla ekki að tala um það núna heldur verður það afgreitt í næstu færslu. Veit að þið bíðið spennt haha:lol:.

En þanga til næst, veriði hress:),


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 13:03:37 / roonie

Djamm og legið í leti

Föstudagurinn byrjaði á skólanum, alltaf gaman að teikna aðeins;). Við völdum fríhendis teikningu og vaslitun í valáfanganum. Verð bara að segja að þetta er ekki mín sterkasta hlið hehe:D. Síðan um kvöldið var tekið djamm á þetta. Það var útskrift í skólanum svo það var nóg að gerast í bænum;). Síðan var bara leti í allan gærdag, bara legið upp í rúmi og sófa til skiptis og horft á bíomyndir og þætti. Sældar líf:D. Núna erum við að fara í sund strákanir og erla lika held ég. Við keyptum okkur 3 mánaða kort og ætlum að vera duglegir að synda og stunda potta og gufu;).

En ég er off núna svo hafði það gott.;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 21:40:05 / roonie

Afmæli hjá brósa

Komiði sæl! Já það er afmæli hjá honum gunna bróður á laugardaginn 19 jan. Og ætlum við strákarnir í tilefni dagsins að fara til köben og skemmta okkur aðeins hehe. Jói árna á lika afmæli en aðeins seinna 23 jan. Svo það má segja það að það verði allt tvöfalt:lol:. Stefnan er að fara á morgun eftir hádegi og koma aftur á sunnudagin. (seinni partin);). En annars er ég bara búin að vera í skólanum, ohhh það er svo gaman í skólanum:P. Það er lika búið að taka smá póker, það er svo gaman, en maður verður víst að fara varlega í þessu;). Vonandi koma myndir af okkur í köben, en það verður örugglega pikkað út fer eftir ástandi hehe8).

Þanga til næst veriði hress:lol:.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 22:31:29 / roonie

Söknuður

Það er svo gott að vera á íslandi, það er engu líkt. Gott að koma heim eftir próf og kúpla sig niður. Við lilla höfðum það svo gott, sakna hennar ekkert smá hehe:D. En í morgun kom þessi líka snjór maður. Við vöknuðum hálf 6 og þegar ég leit út um útidyrahurðina þá kom þessi:S svipur hehe. Það þurfti að skafa helvitis bílinn, pabbi hjálpaði okkur við það enda öllu vanur;). Síðan var haldið upp á flugvöll. Þegar ég var búin að kveðja lilla, fór ég inn og hitti jóa. Ég og jói röltum aðeins um, en svo var fengið sér einn kaldan og spjallað;). Eftir það var farið út að hliði, það var löng röð svo við settumst niður. Hvað haldiði að hafi heyrst í kallkerfinu? nú Já seinkun ohhhhh gat verið. Við byðum í rúma 2 tíma. það er ekkert leiðilegra en að lenda í seinkun, það er alveg á hreinu. Síðan mistum við lika af lestinni þegar við vorum komnir til köben, svo við þurftum að bíða í annan klukkara í viðbót. Svona fór nú um sjóferð þá8). En núna er ég komin til horsen og að byrja nýja önn á morgun. Við erum komnir á 4 önn og það stittist í þetta hjá okkur;).

Hlakka til að takast á við þessa önn. En nú er ég farin að lúlla:o. Þanga til næst veriði hress:D.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 26457
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012